6.10.2008 | 12:22
verðum að halda í bjartsýnina
Ég sit hér með kaffibollann minn,horfi á þetta vonda veður út um gluggann minn og neita að vera vonlaus eða svartsýn Nýjustu fréttir af henni vinkonu minni eru þær að það eru smá hænuskref fram á við,hún mettar betur,er verið að hugsa um að létta svæfinguna,en hún var komin með smá hita,svo kæru vinir verið svo góð að halda áfram að senda bænir ykkar,það er að virka
Ég tók þá ákvörðun að á meðan allar þessar erfiðu fréttir skella á okkur íslendingum,að lesa ekki neikvæðar fréttir,ef ég kemst hjá því,ég er líka svo stálheppin,að eiga ekkert sparifé í banka,svo ég get sofið rótt yfir því,að það sé kannski allt að brenna upp las gott viðtal við hann Gunnar Eyjólfsson leikara,hann er svo dásamleg persóna og ég ætla að setja hérna smá klausu:Með því að horfast í augu við okkur sjálf gefst okkur tækifæri til að sigrast á því neikvæða.Að uppræta hið neikvæða er eins og að fjarlægja illgresi úr blómabeði.Um leið og þú fjarlægir það skapast rými fyrir fleiri jurtir.þetta finnst mér góð speki og ætla að reyna að mynna mig á þetta,þegar neikvæðnin grípur migAnnars bara vinir mínir njótið augnabliksins,við eigum bara daginn í dag,gærdagurinn er liðinn og morgundagurinn ekki komin og nú ætla ég að fá mér meira kaffi
Athugasemdir
Takk fyrir yndislekt kvöld Samma mín hefði ekki viljað missa af því Kveðja og knús rugludalladósin
Ólöf Karlsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:30
Rugludalladósin mín eigðu gott kvöldHin rugludalldósin
Ólöf Karlsdóttir, 7.10.2008 kl. 20:09
Samma mín ég var í hjálparsveit í Njarðvík Það var rosalega gott og þarft verk vildi koma aftur Rugladalladósaspiladósinn knúsí knús
Ólöf Karlsdóttir, 10.10.2008 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.