7.9.2008 | 22:02
Frábær helgi liðin !!
Nú er frábær helgi liðin með flestum fjölskyldumeðlimum,en auðvitað ekki öllum,það stendur upp úr að Sigrún og Sigga dóttir hennar lögðu á sig að koma á föstudaginn,frá Noregi og fóru svo heim eldsnemma í morgun og Gunni kom til að hitta þær (og okkur) frá Vestmannaeyjum þó aðrir í fjölskyldunni ættu ekki heimangengt
Laeila og stelpurnar hennar Heiðu voru svo auðvitað á svæðinu
Við kannski gerðum ekki allt sem við hefðum viljað gera,en það sem við gerðum var virkilega gaman,það var gaman að fara í árgangsgönguna,það var frábært að komast niður í bæ um kvöldið og sjá hann "litla"systurson minn syngja Nessum dorma á stóra sviðinu,hann er frábær þessi drengur og verður bara betri í hvert skipti sem ég heyri í honum,gæti sko ekki verið stoltari þó hann væri sonur minn og litla systir hans eignaðist sína aðra dóttur á föstudagsnóttina,fyrir tíman en allt gekk vel og þær báðar hressar.
En svona rétt til að mynna mann á hvernig lífið gengur sinn gang,þá fréttum við að góður vinur okkar hjónanna hafi látist í svefni í dag,það ver mjög mikið áfall,þar fór virkilega góður vinur til margra ára.
Mér finnst svolítið magnað að líta yfir þessa Ljósahelgi í þessu samhengi,við upphaf helgarinnar fæðist líf,yfir helgina áttum við dásamlega endurfundi við vini og vandamenn,við lok helgarinnar þegar allir eru að tínast heim ,þá slokknar líf. Hvað segir þetta manni,mér finnst þetta magnað,ég er ekki tilbúin að skrifa um þennan vin okkar en segi bara að þar er farinn góður maður .
Að lokum vil ég lýsa eftir bloggara sem gengur undir nafninu mannsbarn,ég fékk póst sem sagði að þetta mannsbarn vildi gerast bloggvinur minn,en þegar ég ætlaði að skoða það nánar á síðunni minni og annaðhvort játa eða neita fann ég bara ekki neitt
,svo endilega mannsbarn,ef þú lest þetta gefðu þig þá fram,svo ég fái að vita hver þú ert
Annars ætla ég að hætta núna,ég er óskaplega þakklát fyrir að hafa fengið að hafa flest börnin mín og barnabörn hjá mér þessa helgi,ég vil þakka þeim fyrir góðar stundir og bið ykkur öllum Guðs friðar og endilega ef þið kíkið á síðuna skiljið eftir ykkur spor
Athugasemdir
Takk fyrir okkur og ógleymanlega helgi
Rosalega sorglegar fréttir sem ég fékk þegar ég kom heim 
Risa knús og klem til ykkar allra frá mér og mínum
Sigrún Friðriksdóttir, 8.9.2008 kl. 21:06
Nytt hasarblogg fra mer rett eftir ad eg taladi vid til
Sigrún Friðriksdóttir, 8.9.2008 kl. 23:38
Elsku besta mamman min !! Innilega til hamingju med afmælid !!! Vona ad tu eigir godan dag. Sit her i skolanum og skrifa til tin
Er en ad jafna mig eftir ævintyri næturinnar, og buin ad fara i yfirheyrslu hja løgguni. Fer svo i sjukratjalfun og aftur i skolan og svo ætla eg ad hringja i tig i kvøld elsku hjartans dullan min !!!!
Sigrún Friðriksdóttir, 9.9.2008 kl. 12:00
Elsku Mamma mín. Takk æðislega fyrir frábæra helgi þó að hún hafi endað eins og hún gerði þá var engu að síður yndislegt að vera með ykkur öllum og hitta Sigrúnu aftur eftir þennan langa tíma.
Elsku Mamma mín innilega til hamingju með afmælið erfitt að vera ekki nálægt þér til að knúsa þig smá...
en ég bæti það upp seinna 
Þín dóttir stödd í hafnafirði.
Laeila
Laeila Jensen Friðriksdóttir (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 13:37
takk stelpurnar mínar fyrir kveðjurnar,það er næstum alveg eins gott að fá svona knúskveður eins og faðmlag
,og Ladý Vallý takk fyrir samúðarkveðjuna elskan og Ditta mannsbarn ,minn er heiðurinn, takk fyrir að velja mig og nú ætla ég að fara að klæða mig bara búin að njóta þess að slæpast í dag í tilefni dagsins
Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 9.9.2008 kl. 13:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.