Frábærar fréttir:D og Ljósanótt í Reykjanesbæ!!!

Við vorum að fá þær frábæru fréttir að Sigrún og Sigga "litla"ætli að leggja á sig að koma frá Noregi á LjósanóttLoL ætla að fljúga hingað á föstudegi og heim á sunnudegi,þetta er náttúrulega ótrúlegt og eitthvað sem ég átti ekki von áGasp  ég hélt fyrst að hún væri að djóka í mér,þetta var svo ótrúlegt.Eins og er veit ég ekki hvort Gunni og fjölskylda kemur,vonandi samt,það er alltaf hægt að finna svefnpláss,ef fólk sefur þá nokkuð yfirleittWink  Heiða missir af góðu gamni,er að fara til Krítar í langþráð frí í viku barnlaus,vissi auðvitað ekki að Sigrún kæmi,en svona er þetta bara og vonandi skemmtir hún sér vel hún á það svo skilið Tounge á meðan verður Victoria litla hjá okkur að heilsa upp á nýjasta Reykjanesbæinginn,skessuna í Berginu sem flytur á Ljósanótt,hún er búin að fara og skoða fótspor skessunnar, við hólin í Innri Njarðvík og var ekkert smá spennt þegar hún sá að fóturinn hennar var eins og litla táin á skessunniHappy  Það verður allavega mikið um dýrðir,veðurspáin lofar frekar góðu,nú ef það bregst þá er bara að klæða sig eftir veðri,þetta er jú okkar þjóðhátíðGrin  Ég elda alltaf stóran pott af "sumarsúpu" og hef ýmislegt annað með og svo koma bara allir sem vilja koma og fá sér að borða hittast og spjalla áður en farið er aftur niður í bæ,oh ég hlakka svo til.En nú er ekki til setunnar boðið þarf að fara að finna ljósaseríur og hengja í gluggana,þetta er jú LjósanóttTounge Svo ég segi bara sjáumst sem flest hress og kát á Ljósanótt í ReykjanesbæGrin

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband