3.8.2008 | 02:10
Verslunarmannahelgi og ég ekki í Eyjum :(
Jæja komin ein enn verslunarmannahelgin og við hjónakornin höngum heima þetta er nú kannski ekki spurning um að vera bara heima af því maður nennir ekki eitthvað,eða getur ekki farið eitthvað
það er bara svoleiðis að þegar heilsan er farin að bila hjá fólki,þá getur það kannski ekki alltaf farið það sem það langar og þannig er það hjá bónda mínum.Hann er orðin ansi mikill Lasarus og á orðið bágt með að ganga mikið,sitja lengi og sofa annarstaðar en í sínu eigin rúmi
hann er einnig farin að verða svolítið gleyminn svo ég þori ekki og vil ekki leggja á hann að ver einn heima,þannig að,ef hann treystir sér ekki í ferðalag,þá er ekki farið
.Það þýðir ekki að mig langi ekki,ég er alveg veik að vera í Eyjum,þar á ég son og dásamlega tengdadóttir og barnabörn,sem er ótrúlega gaman að vera með á þjóðhátíð
En svona er þessi staða,hann treystir sér ekki,ég get ekki beðið neinn að vera hjá honum,enda bara mitt verk,svo ég geri bara það besta úr þessu og reyni að vera með restinni af familíuni,það er að segja,þeim sem eru hér.
Heiða og Victoria komi með okkur til Kefló í gær og gistu í nótt,í dag fórum við til Sandgerðis í afmæliskaffi hjá Lindu og líka að skoða nýja húsið sem hún,Óli og Guðný voru að leigja sér saman
svo grilluðum við Laeila áður en ég keyrði þær svo aftur í Hafnafjörðin.Ég fæ svo fréttir reglulega frá Eyjum,Lilja hennar Heiðu er þar og svo heyri ég í fjölskyldunni líka,vonandi kemst ég næst.Fyrir tveim árum fór ég í fyrsta skipti á þjóðhátíð,vá ég hefði bara aldrei getað ímyndað mér að það gæti verið svona ofboðslega gaman.
Ég gerði mér ekki grein fyrir því að þegar maður fer með heimafólki,þá er það auðvitað svolítið öðruvísi,maður valsar bara með þeim í hvítu tjöldin,syngur út í eitt og dansar fram á morgun
ég hefði aldrei trúað að ég,komin á þennan aldur ætti eftir að upplifa þetta,fyrir það er ég svo sannarlega þakklát,vegna þess að ég stóð kannski í þeirri trú,eins og svo margir aðrir,að þjóðhátið snérist bara um fyllirí,en það gerir hún svo sannarlega ekki,svo ég vona að ég eigi einhveratíma aftur eftir að upplifa þessa stemmingu og óska öllum þjóðhátíðargestum góðrar helgar og mikillar skemtunar
Svo er það annar staður sem ég vildi svo gjarnan vera.Það er úti í Noregi hjá henni Sigrúnu dóttir minni og fjölskyldunni hennar Þau hjónin eru núna um helgina að halda upp á 10 ára hjúskaparafmælið sitt og eftir þrjá daga verður hún fertug
.Hver vill ekki vera hjá barninu sínu,þegar það heldur upp á sérstök tímamót í lífi sínu.En eins og oft í lífinu þá ræður maður ekki við aðstæður og eins og fjármálin á Íslandi standa í dag,gagnvart bótaþegum og dýrtíðinni,þá geta aumingjar eins og við gleymt að láta sig dreyma um að fara til útlanda
.
Ég var einmitt að ræða þessa stéttarskiptingu á Íslandi í dag,hér áður fyrr hefði ég talið okkur í millistétt,við höfðum það alveg ágætt,maður varð ekki var við mikla stéttarskiptingu á Íslandi,auðvitað voru einhverjir ríkisbubbar,en þeir voru svosem ekkert áberandi,Bjössi í bíóinu var kannski sá sem maður vissi um,seinna dóttir hans og tengdasonur ,en þau voru alltaf svo alþýðlegSvo bara vaknar maður upp við vondan draum,maður er með einhverjar hundarðþúsund krónur á mánuði á sama tíma og fullt af fólki er með yfir miljón
og maður er allt í einu komin í fátækra manna tölu,hvaða réttlæti er þetta
JÆJA nú er sko nóg komið af svona væli,á morgun ætla ég að njóta þess að það er komin nýr dagur,ég er lifandi,á dásamlega fjölskyldu,er fær um að hugsa um mig sjálf,kallinn minn,sinna pabba mínum,börnum og barnabörnum og já barnabarnabörnum svo hvað er ég að væla þó ég komist ekki það sem mig langar,á morgun ætla ég að njóta þess að vera til og elska sjálfa mig svolítið,dekra við mig og fá Laeilu til að lakka á mér táneglurnar
Til ykkar sem lesið þetta njótið líðandi stundar,við vitum aldrei hvenær okkar tími er liðinn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.