18.6.2008 | 23:57
Búið að skíra nýja langömmubarnið og fleira;)
Jæja eins og vanalega búið að vera nóg að gera á þessum bænum Hún litla Aðalheiður María var skírð í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn var,í 64 ára gömlum skírnakjól af langömmu sinni
Þessi kjóll er algjört kraftaverk,mamma mín saumaði hann,á mig ,á stríðsárunum,þegar nánast var útilokað að fá falleg efni til að sauma úr.Mamma var náttúrulega algjör listamanneskja þegar kom að handavinnu og slíku og svo sannarlega sést það á þessum kjól.Hann er orðin ansi viðkvæmur enda ekkert skrítið,það verður að þvo hann mjög varlega og nú er næsta verkefni að sauma einhverskonar poka eða hlíf utan um hann,því hann þolir illa núning
Allar mínar stelpur voru skírðar í honum,allar stelpurnar af barnabörnunum,nema 3 elstu hjá Heiðu , því þá héldum við að hann væri orðin ónýtur
En viti menn haldiði ekki að hún móðir mín hafi komið honum í lag aftur áður en Guðlaug hans Gunna var skírð og síðan þá hafa stelpurnar sem fæðst hafa hjá okkur verið skírðar í honum
og ég gæti ekki verið stoltari nú þegar þriðja kynslóðin er farin að nýta þessa dásamlegu flík
Það var semsagt skírnarveisla og þar sem ég þarf alltaf að gera mig ómissandi,bauðst ég til að baka skírnartertuna,upp á þrjár hæðir og hver terta þreföld,nema hvað það tókst nú bara ljómandi vel,en ég gat nú ekki annað en hlegið að sjálfri mér,þegar mig var farið að dreyma á nóttunni að ég væri að baka og skreyta og brjálað að gera he he
Allavega allt fór þetta nú vel og allir ánægðir held ég
Í skírnarveislunni var líka haldið upp á 2 ára afmæli stóru systurinnar hennar Kolbrúnar en hún er fædd á 17 Júní,Laeila fékk hana í afmælisgjöf,svo þetta var bara svaka gaman svo er litla fjölskyldan að flytja til Spánar þar sem húsbóndinn er að fara í nám,svo það má kannski segja að þetta hafi verið kveðjuveisla líka þó þau fari ekki fyrr en um miðjan Ágúst
Á sautjándanum var ekki brugðið út af vananum og skellt sér í Fjörðin á víkingahátíð með Laeilu afmælisbarni ,Heiðu og dætrum og svo grillað á svölunum hjá Heiðu á eftir æðislega gaman 17 Júní hefur alltaf verið svolítið spes síðan við eignuðumst Laeilu þennan dag fyrir 34 árum,þegar hún var lítil reyndum við alltaf að gera eithvað skemmtilegt og það hefur alltaf fylgt okkur eftir það,sem er bara gaman,þó maður sé löngu hættur að fara í skrúðgarðinn,þá er þetta nú sautjándinn
,svo var skemmtileg tilviljun að Friðrik jr.Sigrúnarson útskrifaðist úr skólanum sínum út í Noregi eins og hinir stúdentarnir á Íslandi
Þetta er nú það helsta sem á okkar daga hefur drifið síðan síðast,ég ætla ekki að eiða mörgum orðum í þetta blessaða ísbjarnarmál no.2!!! með ólíkindum hvað við erum leiðitöm á Íslandi,að láta einhverja umhverfissinna út í heimi segja að við VERÐUM að bjarga einhverju hálfdauðu dýri sem villist hingað og svosem allt í lagi þó kvikindið eyðileggi heilt æðarvarp fyrir fólkinu þarna,ég er víst eitthvað domm en ég skil ekki svona sorrý
Annars erum við hjónakornin að fara til Vestmannaeyja á morgun að vera með fjölskyldunni þar Kristberg á afmæli á föstudag og svo er systir hans að fara að taka þátt í Sumarstúlka Vestmannaeyja á laugardag og við ætlum að vera þar,það verður sko bara gaman.
Ég er að hugsa um að láta þetta gott heita í bili og bið alla sem nenna að lesa þetta vel að lifa
Athugasemdir
Hæhæ amma mín!! Aldeilsi er ég hissa!! að lesa blogg hjá ömmu sinni er ekki eitthvað sem margir geta montað sig af!
Lovjú :*
Guðný (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 00:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.