7.6.2008 | 03:56
Mikið að gera og margt að ske;)eða þannig
Það er búið að vera rosalega mikið að gera í kvennasveitinni undanfarið og við mæðgur orðnar dálítið þreyttar.Allt í góðu lagi að keyra út bæklinga í tvo daga eða svo,vakna eldsnemma til að fara á leikskóla og gefa litlu krílunum bæklinga til að fara með heim til að sýna mömmu og pabba hvað er nauðsynlegt að vera í belti í bílnum,kannski líka allt í lagi að standa í nokkra klukkutíma að selja sjúkrapúða í bíla (það var Laeila ekki ég) en það tók eiginlega steininn úr í dag,þegar við vorum beðnar um að hjálpa björgunarsveitinni að vera í gæslu út í Helguvík,á meðan pótintátarnir tóku skóflustungu að nýju álveri,ekki miskilja mig,mér er eiginlega sama þó það komi álver í Helguvík,þarna voru einhverjir 8 mótmælendur og við áttum að passa að þeir kæmust ekki inn,komon,hvernig áttum við svosem að vita hverjir voru hvað??? Þetta var svolítið skondið,tveir öryrkjar á gatnamótunum,hvorug þeirra í stakk búin að stoppa einhverja mótmælendur, við þurftum að afhenda hverjum bílstjóra miða með leiðbeiningum,svo að í tvö skipti sáum við eitthvað grunsamlegt,vá,bílar með einhver kröfuspjöld afturí,hvað átum við að gera,já sem betur fer vorum við með talstöð og gátum látið vita af þessum hræðilegu manneskjum,sem voru bara að mótmæla vegna sinnar sannfæringar.Þetta er allt svolítið skondið,þegar maður lítur á þetta svona eftir á,nokkrar konur að reyna að koma í veg fyrir hvað????Hvað var svona hræðilegt við að fólk mótmælti mengun,hvað kom það björgunarsveitinni við,og þá hvað kom það kvennasveitinni við.Ég stóð í þeirri meiningu að kvennasveitin hefði verið stofnuð til að styðja björgunarsveitina,ok það má kannski segja að við gerðum það í dag en ,vorum við ekki öll á gráu svæði í dag.Allavega er ég ekki sátt,mér finnst við vera komnar út fyrir okkar hring,sem ég hélt að væri að hjálpa fólki.Við mæðgur vorum mjög vindbarðar og fullar af vegaryki þegar við loksins komum heim!!!!!!
Annars bara búið að ver nóg að gera ,eins gott að maður er ekki í vinnu.!!!Fór í morgun eldsnemma heim til Lindu að baka skírnartertuna,vegna þess að ofninn minn er ekki í lagi,það gekk fyrir rest og mér tókst að búa til frómazin á tertuna og passa Kolbrúnu litlu á meðan litla María fór í 6 vikna skoðun,áður en við Laeila lentum svo í ævintýrinu í Helguvík. Mig langar lík aðeins að tjá mig um þennan aumingja ísbjörn,sem villtist hér á land,fyrir hver veit hvað mörgum mánuðum,þvílík móðursýki hvað er í gangi,þetta er bara dýr og það má þakka guði fyrir að það var ekki búið að ráðast á neinn áður er það fannst!!!.
Finnst fólki virkilega afsakanlegt,að eiða stórfé í að bjarga einu svona dýri,á sama tíma og öryrkjar og ellilífeyrisþegar,endast ekki mánuðinn á bótum og þurfa að leita til hjálparstofnana til að endar nái saman!!!!!!
Það er nú ekki allt í lagi í þessu þjóðfélagi!!! Annars ætla ég að láta þessar hugleiðingar duga í bili,takk fyrir mig.

Athugasemdir
hæ amma min... bra svo þú vitir það þa ert þú og laeila alveg svakalega duglegar og eg daist af ykkur... en þetta með isbjörnin þú veist nu hvað eg er mikill dyravinur en eg mun samt vera sammala þer i þessari umræðu þvi hvernig a litla island að geta farið með svona dyr til sins heima og það sem það mundi kosta oh my god..... frekar að hjalpa folkinu sem hefur ekki i sig og a her heima.. en eg elska þig i kúrkubita og tertur
Lilja ömmustelpa
Lilja rós Jensen, 8.6.2008 kl. 13:57
Hér hefur þetta nú bara ekki verið nefnt þ.e.a.s ísbjörninn. Held að þetta sé eins og margt annað á íslandi, blásið upp á íslenskum fjölmiðlum. Það hefur örugglega einhver blaðamaður á íslandi haft sambandi við einhver dýraverndunar samtök erlendis til að leita álits og við hverju á þá að búast. Allavega finnst mér bara fínt að hann sé dauður blessaður þó að ég vilji vernda þá. Þá ekki undir öllum skilyrðum. Skrítið að þið lendið svo í þessari gæslu finnst mér. Allavega hörkuduglegar !!!
Knús og klemmur frá mér og til hamingju með elstu dótturina
Sigrún Friðriksdóttir, 9.6.2008 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.