11.5.2008 | 01:34
Hvítasunnan tekin snemma.
Við vorum svolítið forsjál í fjölskyldunni og tókum hvítasunnuna snemma,ég var nefnilega búin að filgjast með veðurfregnum og sá fram á,að það yrði rigning minsta kosti á morgun,svo í staðin fyrir að bjóða í hefðbundinn veislumat á morgun,sló ég nokkrar flugur í einu höggi,sem endaði með grill-veislu í kvöld,svo þá erum við allavega búin að hittast öll þessa helgi
Ég byrjaði með því að bjóða henni Victoriu prinsessu (Sollu stirðu),að koma til afa og ömmu og halda partý og gista,svo mamma hennar og systir gætu átt frí eitt kvöld það var bara ferlega gaman,Laeila frænka dekraði þvílíkt við hana,setti á hana naglalakk,ylmvatn,augnskugga og að lokum tatoo svo þær væru nú eins
Í dag komu svo mæðgurnar úr Hafnafirði með rútunni,Linda og fjölskylda,Guðný og Óli og við á þessu heimili slógum svo upp grillveislu sem tókst rosalega vel,og að lokum skutlaði Laeila mæðgunum heim og eitt er víst að lítil prinsessa úr Hafnafirði var mjög glöð að sjá mömmu sína og systir svo nú er ég búin að sinna fjölskylduskildunum og get bara slappað af og lesið og sofið út og slæpst á náttfötunum ef mér sýnist svo he he
Eitt mál er búið að hvíla mjög þungt á mér,það er Byrgismálið.Mér finnst þetta mál svo grátlegt,að nokkur manneskja geti gert það sem Guðmundur í Byrginu gerði og skýlir sér á bak við Guð almáttugann og ekki finnst mér skárra ef satt er,að konan hanns hafi verið með honum í þessu.Af hverju í ósköpunum eru ekki allir ákærðir í þessu máli?Ef marka má málskjölin,þá voru fleiri sem komu að þessari svívirðu heldur en bara Guðmundur,hvers vegna sleppur þetta fólk og hvernig má það vera að þetta fólk fær að ala upp börn,hvað veit maður hvað það getur gert þeim???
Og svo í framhaldi af þessu máli,þessi frétt um háskólakennarann sem er búin að vera í gæsluvarðhaldi,síðan í byrjun Apríl,vegna misnotkunar á að minnsta kosti fimm fjölskyldumeðlimum,báðum kynjum!!! Þessi frétt virtist hafa lekið óvart út núna í byrjun Maí og einhvernvegin hvarflar að manni ,að það sé verið að hlífa gerandanum og þá dettur manni í hug,mál sem snerti líka háskólakennara sem hafði misnotað dóttir sína í langan tíma,hann var með góðan lögfræðing og slapp!!Því miður fyrir þennan ,er sá lögfræðingur orðin dómari,en kannski dæmir hann í hans máli hver veit?!
Ég verð bara svo brjáluð þegar ég heyri af svona málum,ég lenti í misnotkun sjálf sem barn og veit að þetta er eitthvað sem fylgir manni allt manns líf,öll þessi skömm,niðurlæging,sársauki og sektarkennd sem fórnarlöm þessara níðinga,þurfa að lifa við. Ég er heppin,vegna þess að mér hefur tekist að tala mig frá þessum sársauka og þessari skömm og mér hefur líka tekist að fyrirgefa gerandanum,fyrr held ég að maður fái ekki frið í sálinni.
Annars ætla ég bara að slá botninn í þetta blogg,loksins kom ég mér a því að setjast niður og skrifa,svo vinir og vandamenn eigið góða og slysalausa Hvítsunnu helgi.
Athugasemdir
Gaman að lesa blogg frá þér mamma mín og gott að lesa að grillið tókst svona vel, ekki að spyrja að því alltaf kóngaveisla þegar þú ert annars vegar
EN hryllileg þessi mál sem þú ert að skrifa um og vonandi vaknar aðeins umræðan , sérstaklega þegar það er svona augljóslega verið að þagga niður mál af því að viðkomandi er í góðri stöðu eða á peninga 
Grýta allt þetta pakk !!!
Love jú í rendur og ræmur og grill og góðan mat
Sigrún Friðriksdóttir, 19.5.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.