Loksins tími til að blogga ;)

Jæja þá er loksins smá pása búið að vera mikið um veikindi og svoleiðis vesen,Heiða lenti inn á sjúkrahúsi og þar sem Lilja var líka lasin var ekki um annað að ræða en taka hana og Victoriu prinsessu heim til ömmu og afa,hvað annaðJoyful

Eins og lög gera ráð fyrir hjá löggiltum ömmum og öfum,þá á tilveran að snúast um ömmu börnin þegar þau eru í heimsóknWink og í þessu tilfelli gerðum við okkar besta til að standa okkur,en þar sem þessi heimsókn varði í nánast viku,þá voru bæði prinsessan og öldungarnir orðin svolítið dösuðWhistlingen í morgun kom mamma LOKSINS heim og sú stutta gat loks farið að tala við hana aftur og ég tala nú ekki um að knúsa hana,hún nefnilega setti mömmu sína í straff,vildi hvorki knúsa hana á spítalanum eða tala við hana í símaAngryhún var bara ösku reið yfir þessu vesen í mömmuWoundering Svo nú er allt vonandi á leið til bata í HafnafirðinumSmile

Ég hef verið að hugsa í tengslum við þessi veikindi núna,svo oft verð ég svo þreytt á þessu heilsuleysi á þeim sem ég elska mest,og jafnvel á sjálfri mér líka,mér finnst oft ég geti ekki meir,en þá,undantekningarlaust,er eins og ég fái spark í afturendann og búum! ég er tilbúin að hjálpa þeim eins og ég get,oft getur maður svosem ekki mikið meira en staðið við bakið á þeim,og sýnt þeim þann stuðning sem maður getur,en stundum er það nógSmile Ég er svo þakklát fyrir að vera,þrátt fyrir allt,fær um að veita einhverja hjálp,og ég er ekki síður þakklát fyrir hvað þessi börn mín stand saman og hvert með öðru ef eitthvað bjátar á og ekki síður með okkur ef eithvað er aðKissing

Ég er kannski meira í þessum hugleiðingum í kvöld,vegna þess að ég var á jarðaför í dag,að fylgja gamalli skólasystur og vinnufélaga síðasta spölinn.Það var margt sem presturinn sagði,sem kom við mig, einmitt kannski þetta ,að vera tilbúin fyrir fjölskylduna sína,og að vera þakklátur fyrir það sem maður á,vegna þess að auður minn felst ekki í peningum heldur öllum afkomendum mínum,það getur ekki nokkur maður tekið frá mérGrin

JÆJA þetta er nú að verða svolítið háfleygt,held bara að það nálgist heimspekiUndecided svo held ég hætti þessu,komið nóg.

Ég er rosalega ánægð með viðtökurnar á blogginu mínu,held ég sé strax orðin húkt á þetta,gríp mig í því að hugsa,"ég þarf að blogga um þetta" og það er svolítið gaman,ég held þessi blogg heimur sé svolítið spes og ég hlakka til að kynnast honumW00t

Ég læt þetta gott heita í bili og bið guð að blessa ykkur öll,sem nennið að lesa þettaKissing

Já ég er ofsalega ánægð með að hún Sigrún mín er að far aftur til Taílands,þær hafa gott af þessu vinkonurnarGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða kveldið Frú Sigríður

Já það  er gott að geta verið til staðar fyrir sýna

þau eru líka til staðar fyrir okkur

svo er það full djopp að vera amma  æ það er yndislegt að vera amma og afi

Æ ég ætlaði að fylga henni skólasystur þinni hún var svo indæl   í dag en komst ekki

jæa Frú Sigríður bið að heilsa gamla

 kveðja frá Vallý

Vally (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 01:33

2 Smámynd: Aðalheiður Friðriksd. Jensen

Ég er ómetanlega þaklát fyrir að stelpurnar gátu verið hjá ykkur  . Til hamingju með að vera farin að blogga :) þú er bara frábær .

 Elska ykkur svo mikið að það er ekki hægt að koma því í orð knúss og klemm

Aðalheiður Friðriksd. Jensen, 12.4.2008 kl. 12:46

3 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Það á ekki að spyrja að ykkur dúllurnar mínar, alltaf eitthvað í gangi. En mikið er ég nú fegin að Heiða sé að hressast og Lilja líka, og amman og afinn fái bara að slappa aðeins af En stundum vildi ég nú geta slökkt á hjálpar takkanum hjá þér, þó að það hafi nú ekki verið núna Ástarkveðjur knús og klemmur frá okkur í Askim

Sigrún Friðriksdóttir, 14.4.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband